Skúmur pollabuxur Outlet
2.995 kr.
Léttar og liprar pollabuxur fyrir börn. Þær þrengja hvergi að og eru úr mjúku efni með límda sauma og góð endurskinsmerki. Traustur leikfélagi sem lætur smá rigningu ekki stoppa sig.
Þvottaleiðbeiningar
Flestar Cintamani skeljar má þvo í þvottavél. Ekki þvo flíkina á hærri hita en ráðlagt er á þvottaleiðbeiningum flíkurinnar sjálfrar, vanalega er mælt með að ekki sé þvegið útivistaflíkur á hærri hita en við 30°C.
Skeljar eru úr tæknilegum efnum og þess vegna ætti að þvo þær í vél eins sjaldan og hægt er til þess að auka líftíma þeirra. Inn í efninu er vindheld filma og oft er ytra byrði efnisins meðhöndlað með efnum sem gera flíkina vatnsfráhrindandi. Við mikinn þvott skemmist vindhelda filman og flíkin missir smám saman vatnsfráhrindandi eiginleika sína.
Oft er nóg að strjúka af flíkinni með blautum klút, skola með vatni (t.d. í sturtunni) eða láta lofta um hana.
Mýkingarefni getur eyðilagt útivistaflíkur og ekki ætti að nota þau. Það er mælt með því að notuð sé minna en matskeið af þvottaefni, sem er án aukaefna eða sérstakt þvottaefni fyrir skeljar. Það er sérstaklega varað við þvottaefnum með mýkingarefnum.
Til að fara sem best með flíkina í þvotti, er best að velja kerfi í þvottavélinni sem er ætlað viðkvæmum þvotti, eins og ullar eða silkikerfi og forðast að vinda.
Lokaðu öllum rennilásum og frönskum rennilásum, nema þeim sem eru fyrir vösum, áður en flíkin er þvegin
NÁNAR UM FLÍKINA
- Klassískar regnbuxur úr mjúku og endingargóðu 100% næloni með PU-húð
- Allir saumar soðnir fyrir hámarks vatnsvörn
- Teygja í streng og neðst á skálmum
- Vatnsheldni: 10.000 mm
- Öndun: 5.000 g/m2/24 klst.
Þér gæti einnig líkað við…
Börn
Börn
Fylgihlutir