Gustur 3ja laga
49.995 kr.
Létt og lipur þriggja laga GELANOTS fyrir karla. Einstaklega lipur og fullkomin í mikla hreyfingu eins og hlaup, göngur, hjólreiðar og gönguskíði.
Einstaklega góð öndun. Vegur 300gr (stærð M)
Þvottaleiðbeiningar
Flestar Cintamani skeljar má þvo í þvottavél. Ekki þvo flíkina á hærri hita en ráðlagt er á þvottaleiðbeiningum flíkurinnar sjálfrar, vanalega er mælt með að ekki sé þvegið útivistaflíkur á hærri hita en við 30°C.
Skeljar eru úr tæknilegum efnum og þess vegna ætti að þvo þær í vél eins sjaldan og hægt er til þess að auka líftíma þeirra. Inn í efninu er vindheld filma og oft er ytra byrði efnisins meðhöndlað með efnum sem gera flíkina vatnsfráhrindandi. Við mikinn þvott skemmist vindhelda filman og flíkin missir smám saman vatnsfráhrindandi eiginleika sína.
Oft er nóg að strjúka af flíkinni með blautum klút, skola með vatni (t.d. í sturtunni) eða láta lofta um hana.
Mýkingarefni getur eyðilagt útivistaflíkur og ekki ætti að nota þau. Það er mælt með því að notuð sé minna en matskeið af þvottaefni, sem er án aukaefna eða sérstakt þvottaefni fyrir skeljar. Það er sérstaklega varað við þvottaefnum með mýkingarefnum.
Til að fara sem best með flíkina í þvotti, er best að velja kerfi í þvottavélinni sem er ætlað viðkvæmum þvotti, eins og ullar eða silkikerfi og forðast að vinda.
Lokaðu öllum rennilásum og frönskum rennilásum, nema þeim sem eru fyrir vösum, áður en flíkin er þvegin
NÁNAR UM FLÍKINA
- Úr 100% Nylon Ripstop.
- Efnið er Oeko-tex samþykkt og án PFOS meðhöndlunar
- Vatnsheldni: 20.000 mm / Öndun: 20.000 g/m/m2/24klst (Þar sem efnið er þunnt þá blotnar það fyrr í gegn í mikilli úrkomu heldur en þykkara efni sem er líka með 20.000 mm í vatnsheldni. Fullkomin vindvörn og öndun.)
- Límdir saumar
- Tvöfaldur, vatnsheldur YKK®-rennilás að framan
- Tveir vasar með vatnsheldum YKK®-rennilásum
- Vatnsheldur YKK®- rennilás undir höndum, frá olnboga að mitti til að auka öndun
- Stillanleg hetta sem passar yfir hjálm.
- Ermafaldur er stillanlegur með frönskum rennilás
- Stillanleg teygja í faldi
- Logo á ermi er endurskin
- Snið aðeins síðara að aftan, aðsnið í mitti og mótuðum ermum fyrir sem þægilegustu notkun.