|
Cintamani styrkir vélsleðamær
Nú á dögunum gerðu Cintamani og Kristín Elísabet Gunnarsdóttir með sér samning þar sem Cintamani styrkir þátttöku Kristínar í Snocross-mótaröðinni sem haldin er á vegum Mótorhjóla- og vélsleðaíþróttasambands Íslands. Alls eru haldnar fjórar umferðir sem fara fram á Akureyri, Ólafsfirði, Mývatni og Siglufirði.
Þetta er fyrsta keppnisár Kristínar en hún er nemi í fjölmiðlafræði við Háskóla Íslands og fullgild björgunarsveitarkona. Kristín mun kepppa á Polaris-sleða af gerðinni Pro X 440. Við munum því fylgjast vel með Kristínu í vetur en þær stúlkur sem taka þátt í mótaröðinni halda uppi vefsíðunni snocrossstelpur.blogcentral.is.
|