| Rétt meðhöndlun á Cintamani flíkinni þinni | Flís og Tecnostretch:
- Best er að þvo flísfatnað á kerfi fyrir viðkvæman þvott ef þú hefur slíkt í þvottavélinni þinni. Flís á að þvo á 30◦c hita, og alls ekki meira, 40◦c geta farið illa með flíkina. Mýkingarefni getur skemmt flís í fyrsta þvotti og því skal forðast að nota það algjörlega. Best er að setja tæplega matskeið af þvottadufti án aukaefna eða lítinn tappa af fljótandi þvottaefninu “Flísþvottur” sem við mælum sérstaklega með. Athugið sérstaklega hvort að þvottaduftið innihaldi mýkingarefni, því það má ALLS EKKI nota.
- Það fer mjög illa með flís að setja það í þurrkara og það má alls ekki strauja það.
- Flís og Tecnostretch efnin eru tæknileg efni og það eykur líftíma þess að þvo það sem minnst. Oft er nóg að strjúka af flíkinni með blautum klút eða skola með vatni og óþarft að setja í þvottavél í hvert skipti.
- Til að fara sem best með flíkina í þvotti, er best að velja kerfi í þvottavélinni sem er ætlað viðkvæmum þvotti, eins og ullar eða silkikerfi ef það er í boði, og forðast að setja á vindu.
- Það sést mjög vel á Tecnopile og Tecnostretch flísi ef það hefur verið þvegið á of miklum hita, sett í þurrkara eða þvegið með mýkingarefni. Það telst ekki galli og við tökum ekki við slíkum flíkum til baka.
Tecnowool:
- Tecnowool er sérstaklega tæknilegt einangrunarefni sem yfirleitt er notað sem millilag. Tecnowool er blanda af flísi og ull og þarf að meðhöndla sérstaklega vel.
- Best er að þvo Tecnowool á kerfi fyrir viðkvæman þvott ef þú hefur slíkt í þvottavélinni þinni. Hitastigið þarf að vera nákvæmlega það sem tilgreint er á þvottamiðanum innaní flíkinni. Mýkingarefni getur skemmt ullarflís í fyrsta þvotti og því skal forðast að nota það algjörlega. Best er að setja tæplega matskeið af þvottadufti án aukaefna eða lítinn tappa af fljótandi þvottaefninu “Flísþvottur” sem við mælum sérstaklega með. Athugið sérstaklega hvort að þvottaduftið innihaldi mýkingarefni, því það má ALLS EKKI nota.
- Það fer mjög illa með ullarflís að setja það í þurrkara og það má alls ekki strauja það.
- Það sést mjög vel á ullarflísi ef það hefur verið þvegið á of miklum hita, sett í þurrkara eða þvegið með mýkingarefni. Það telst ekki galli og við tökum ekki við slíkum flíkum til baka.
Mjúk skel:
- Mjúkar skeljar á að þvo eins sjaldan og maður kemst upp með til að auka líftíma þeirra. Ástæða þess er sú að inni í efninu er filma sem heldur vindi frá og oft er ytra birgðið á efninu meðhöndlað með efnum sem gera flíkina vatnsfráhrindandi. Við mikinn þvott skemmist vindhelda filman og flíkin verður minna vatnsfráhrindandi.
- Oft er nóg að strjúka af flíkinni með blautum klút eða skola með vatni og óþarft að setja í þvottavél í hvert skipti.
- Mjúkar skeljar á að þvo á þeim hita sem gefinn er upp á þvottamiða innaná flíkinni, það að þvo skeljar með aðeins of heitu vatni getur farið mjög illa með flíkina. Mýkingarefni má alls ekki nota og best er að setja aðeins tæplega matskeið af þvottadufti án aukaefna eða lítinn tappa af fljótandi þvottaefninu “Skeljaþvottur” sem við mælum sérstaklega með. Mikilvægt er að athuga sérstaklega hvort að þvottaduftið innihaldi mýkingarefni og forðast slíkt alveg.
- Það fer mjög illa með soft shell að setja það í þurrkara og það má alls ekki strauja það.
- Til að fara sem best með flíkina í þvotti, er best að velja kerfi í þvottavélinni sem er ætlað viðkvæmum þvotti, eins og ullar eða silkikerfi ef það er í boði, og forðast að setja á vindu.
- Það sést mjög vel á soft shell flíkum ef það hefur verið þvegið á of miklum hita, sett í þurrkara eða þvegið með mýkingarefni. Það telst ekki galli og við tökum ekki við slíkum flíkum til baka.
Skeljar:
- Skelja flíkur á að þvo eins sjaldan og maður kemst upp með til að auka líftíma þeirra. Ástæða þess er sú að inni í efninu er filma sem heldur vindi og vatni frá. Við mikinn þvott skemmist sú filman og flíkin tapar eiginleikum og heldur vatni og vindi ekki eins vel frá.
- Skeljar á að þvo á þeim hita sem gefinn er upp á þvottamiða innaná flíkinni, það að þvo skeljar með aðeins of heitu vatni getur farið mjög illa með flíkina. Mýkingarefni má alls ekki nota og best er að setja aðeins tæplega matskeið af þvottadufti án aukaefna eða lítinn tappa af fljótandi þvottaefninu “Skeljaþvottur” sem við mælum sérstaklega með. Mikilvægt er að athuga sérstaklega hvort að þvottaduftið innihaldi mýkingarefni og forðast slíkt alveg.
- Það fer mjög illa með skeljar að setja þær í þurrkara og það má alls ekki strauja þær.
- Til að fara sem best með flíkina í þvotti, er best að velja kerfi í þvottavélinni sem er ætlað viðkvæmum þvotti, eins og ullar eða silkikerfi ef það er í boði, og forðast að setja á vindu.
- Það sést mjög vel á skeljum ef þær hafa verið þvegnar á of miklum hita, settar í þurrkara eða þvegnar með mýkingarefni. Það telst ekki galli og við tökum ekki við slíkum flíkum til baka.
Dúnn og Primaloft:
- Cintamani dúnúlpur má þvo í þvottavél og þurrkara. Ávallt skal fara nákvæmlega eftir því hvaða hitastig er tilgreint á þvottamiða inní flíkinni, og alls ekki þvo flíkina á lægri eða hærri hita.
- Eins og með aðrar útivistarflíkur, þá fer það best með flíkina að þvo hana sem minnst til að auka líftíma hennar. Oft er nóg að strjúka af flíkinni með blautum klút eða skola með vatni og óþarft að setja í þvottavél í hvert skipti.
- Til að fara sem best með flíkina í þvotti, er best að velja kerfi í þvottavélinni sem er ætlað viðkvæmum þvotti, eins og ullar eða silkikerfi ef það er í boði, og forðast að setja á vindu.
- Dúnúlpur má alls ekki strauja.
- Mýkingarefni má alls ekki nota og best er að setja aðeins tæplega matskeið af þvottadufti án aukaefna eða lítinn tappa af fljótandi þvottaefninu “Dúnþvottur” sem við mælum sérstaklega með. Mikilvægt er að athuga sérstaklega hvort að þvottaduftið innihaldi mýkingarefni og forðast slíkt alveg.
- Mikilvægt er að hneppa loðkraganum af úlpunni áður en hún er þvegin, hann skemmist annars í þvotti.
- Eftir þvott er gott að láta flíkina hanga í ca 2-3 tíma og setja hana svo í þurrkara með lágum hita. Gott er að setja með í þurrkara til dæmis tennisbolta eða hreinan strigaskó til að banka upp dúninn.
- Það sést mjög vel á dúnúlpum ef þær hafa verið þvegnar á of miklum hita, settar í þurrkara eða þvegnar með mýkingarefni. Það telst ekki galli og við tökum ekki við slíkum flíkum til baka.
Ullarnærföt:
- Ullarnærfötin okkar eru gerð úr 80% Merino ull og 20% Polyamide, og eru þar með náttúruleg og mjúk. Þetta efni þarf að meðhöndla sérstaklega vel í þvotti.
- Best er að þvo ullarnærfötin á kerfi í þvottavélinni sem er ætlað viðkvæmum þvotti, eins og ullar eða silkikerfi ef það er í boði, og forðast að setja á vindu.
- Ullarnærföt má alls ekki setja í þurrkara, því þá geta þau skroppið saman. Þau má hengja upp eða þurrka flatt.
- Ullarnærföt má alls ekki strauja.
- Merino ullin hefur þann góða eiginleika að það sest ekki í hana mikil lykt og þarf þess vegna sjaldan að þvo hana.
- Ending á ullarnærfötum okkar er einstaklega góð ef hún er rétt meðhöndluð.
- Það sést mjög vel á ullarnærfötum ef þau hafa verið þvegin á of miklum hita, sett í þurrkara eða þvegin með mýkingarefni. Það telst ekki galli og við tökum ekki við slíkum flíkum til baka.
Lopapeysur:
- Lopapeysur okkar eru handprjónaðar úr íslenskri ull. Þær þarf að meðhöndla af varkárni og þær má alls ekki þvo í þvottavél.
- Það má aðeins þvo lopapeysur í handþvotti með mildri sápu.
|
|