18.12.2009 - Jökull Bloggar: #1

Nú er frost á Fróni loksins, loksins og á sama tíma og dagarnir styttast, styttist í að við komumst út að gera það sem við elskum að gera. Ég á náttúrlega við öll þessi skrítnu áhugamál sem fjallafólk stundar á veturna, til dæmis ísklifur og fjallaskíðamennsku. Haustin eru mér oft erfið eins og svo mörgum öðrum hér á landi Ísa en það er ekki myrkrið sem kvelur heldur rigningin sem neitar að breytast í snjó og vatnið sem ekki ummyndast í klaka. Ég sit heima og bíð og vona með allar veðurspár norðurhvels jarðar opnar í vafraranum en hitatölurnar haldast bara rauðar og ekkert gerist fram eftir hausti.

Til að bæta gráu ofan á svart að þá gerist það svo alltaf að það kemur hausthret með fullt af snjó og ísinn byrjar að bunkast upp en svo nokkrum dögum síðar er hitinn kominn í 12 stig og draumarnir um snemmbúinn vetur frestast um margar vikur til viðbótar. Það ótrúlega við þetta allt saman er jú kannski það að maður skuli láta platast ár eftir ár til að trúa því að veturinn komi í september. En svo kemur loksins að því að sólin nær ekki yfir fjöllin fyrir norðan og veðrakerfin breytast mér í vil og þá halda manni enginn bönd, sama þótt að dagarnir séu bara nokkrir klukkutímar eða veðrið snarvitlaust. Maður býr sig á fjöll og heldur út í myrkrið og óveðrið æstur af hamingju.

Þetta haustið var engin undantekning frá reglunni þar sem að snjónum kyngdi niður strax í lok september og maður fékk alveg útivistaræðisglampann í augunn. En svo kom blíðan og ekkert hefur gerst fyrr en nú í lok nóvember, sem er með allra síðasta móti ef ísklifrarar fengju að ráða. En núna hef ég fulla trú á vetrinum og mér til mikillar gleði eru öll veðurkort uppfull af bláum tölum með bandstriki fyrir framan.

Vestfirðingar voru þeir fyrstu til að berja ís þetta árið. Þar voru á ferð nokkrir galvaskir Ísfirðingar en þeir búa við þau mögnuðu lífsgæði að vera umkringdir bröttum fjöllum þar sem ísfossar steypast fram af í hundraða tali. Þetta eru nú kannski ekki lífsgæði fyrir hinn almenna borgara þarna fyrir vestan en þetta er akkúrat eitt af því sem að gerir Ísafjörð að fyrirtaks stað til a búa á, ef útivist og fjallaferðir eru það sem fá þig fram úr á morgnanna. Þessu til viðbótar kyngir nú niður snjó á Tröllaskagann sem er jú okkar aðal skíðaland með alla sína bröttu tinda og víðfeðmu smájökla. Það má því fastlega búast við því að strax á næstu dögum birtist fyrstu lýsingarnar af guðdómlegu hnédjúpu nýsnævi frá Norðurlandi á veraldarvefnum. Já það er vetur í lofti og á sama tíma og hinn almenni borgari bölvar því að skafa af bílnum á morgnanna og bændur syrgja milt haust, þá kætast ísklifrarar og fjallaskíðamenn ógurlega því það er jú alltaf svo að eins dauði er annars brauð.

Jökull Bergmann

Back

Conditions of Use  -  Privacy Notice  -  Shipping & returns