06.11.2009 - Cintamani opnar sérverslun í Kringlunni

Fimmtudaginn 29. október opnaði Cintamani loksins verslun í Kringlunni. Það hefur lengi staðið til setja upp Cintamani sérverslun í Kringlunni en Útilífsverslunin hefur boðið upp á Cintamani í mörg ár. Með opnun verslunarinnar gefst gestum Kringlunnar kostur á að nálgast enn breiðara úrval að vönduðum útivistarfatnaði.

Verslunin er staðsett á annarri hæð nálægt rúllustiganum en innréttingarnar í hennir eru upprunalega úr sýningarbás sem Katrín Ólína Pétursdóttir hannaði fyrir Cintamani. Allt í versluninni er sérsmíðað fyrir Cintamani og hafa fjölmargir komið að bæði hönnun og útfærslu hennar. Hér fyrir neðan eru myndir af versluninni.

 

Cintamani Kringlan

Cintamani Kringlan

 

Cintamani Kringlan

 

 

Back

Conditions of Use  -  Privacy Notice  -  Shipping & returns